Gönguferðir Hér er um að ræða eitt af bestu göngusvæðum á Íslandi þar sem litfögur og tignarleg fjöll, fjölbreytt flóra og dýralíf auk sögu liðinna tíma heillar þá sem um svæðið fara. Á leiðinni má einnig finna fjölda staða þar sem álfar og þjóðtrú koma við sögu og eru alls skráðar um 175 þjóðsögur og sagnir frá svæðinu. |
| Borgarfjörður Eystri - Skipulagðar ferðir |
|
|
|
|
Ferðaskrifstofa Austurlands í samstarfi við Ferðaþjónustuna Álfheima skipuleggur ferðir fyrir hópa og einstaklinga á Borgarfjörð, Víknaslóðir, Loðmundarfjörð og víðar á Austurlandi. Sumarið 2010 er þegar orðið þétt setið svo endilega hafa samband svo við getum sniðið ferð að ykkar þörfum. Allar nánari upplýsingar fást hjá Arngrími Viðari í síma 8613677 eða á netfangið This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it
|