Gönguferðir Hér er um að ræða eitt af bestu göngusvæðum á Íslandi þar sem litfögur og tignarleg fjöll, fjölbreytt flóra og dýralíf auk sögu liðinna tíma heillar þá sem um svæðið fara. Á leiðinni má einnig finna fjölda staða þar sem álfar og þjóðtrú koma við sögu og eru alls skráðar um 175 þjóðsögur og sagnir frá svæðinu. |